Opið fyrir skráningu í Sæunnarsund 2024

 

 

Þá er komið að’í, opnað hefur verið fyrir skráningu í Sæunnarsundið 2024. Dagurinn er 31. ágúst og fyrirkomulagið verður svipað, við setjum öryggið á oddinn og höfum gaman.

Að þessu sinni verða fjöldatakmörk, það auðveldar mönnun á öryggispóstum. 

Þátttökugjald 2024 er kr. 22.000,-

Og núna verður almennileglegt partý á laugardagskvöldinu. Holt Inn hefur verið tekið frá fyrir syndara og um að gera að panta gistingu sem allra allra fyrst. Innifalið í þátttökugjaldi er tvírétta hátíðarkvöldverður, skemmtiatriði og tónlistarflutningur. Fyrir viðhengi og meðhjálpara syndara er verðið 6.500,-

þetta verður ekki leiðinlegt

kv. Sæunn

Skráning í Sæunnarsund 2025

Verið ætíð velkomin í Sæunnarsund, fljótlega eftir skráningu birtist krafa á bankann og þá er hægt að greiða skráningargjaldið sem er hóflegt, 25.000,-

Learn how we helped 100 top brands gain success