Þá er komið að’í, opnað hefur verið fyrir skráningu í Sæunnarsundið 2024. Dagurinn er 31. ágúst og fyrirkomulagið verður svipað, við setjum öryggið á oddinn og höfum gaman.
Að þessu sinni verða fjöldatakmörk, það auðveldar mönnun á öryggispóstum.
Þátttökugjald 2024 er kr. 22.000,-
Og núna verður almennileglegt partý á laugardagskvöldinu. Holt Inn hefur verið tekið frá fyrir syndara og um að gera að panta gistingu sem allra allra fyrst. Innifalið í þátttökugjaldi er tvírétta hátíðarkvöldverður, skemmtiatriði og tónlistarflutningur. Fyrir viðhengi og meðhjálpara syndara er verðið 6.500,-
þetta verður ekki leiðinlegt
kv. Sæunn